Það hefur
ýmislegt á daga okkar drifið síðan ég bloggaði síðast. Við
mæðgur skelltum okkur ásamt litlum vini Örnu Sólar og mömmu
hans til Køben í gær. Það er stór partur af því að komast í
rétta jólaskapið að skella sér í stórborgina, labba Strikið og
upplifa jólastemninguna

Hér sitjum við mæðgur á kaffihúsi og
höfum það gott

Við eyddum öllum deginum í
gær í höfuðborginni í blíðskaparveðri og í góðum gír. Tókum
lestina snemma um morguninn og komum heim um
kvöldmatarleytið. Arna Sól var alveg að fíla stórborgarlífið
því ekki vildi hún sofa eins mikið og hún er vön.
Miklu skemmtilegra að vaka og kíkja í kringum sig og
sérstaklega í búðunum

Ekkert lík mömmu sinni í þessum
málum

Í síðustu viku fórum við aftur í
babybíó og fannst skvísunni það bara gaman. Vaknaði um leið og
myndin byrjaði og fór svo að sofa þegar henni lauk. Maður verður
auðvitað að fylgjast með

Svo er auðvitað búið að vera jólastúss á
okkur, búnar með jólagjafakaupin og pakkinn á leið á pósthúsið á
morgun með allar gjafirnar heim.
Það er aðeins farið að kólna í
baunaveldinu svo mér fannst vera kominn tími á að setja skvísuna í
kuldagalla sem ég keypti fyrir löngu, setti hana einu sinni í hann
og hún kom inn þokkalega sveitt svo hann var aftur settur inn í
skáp

Það er eins gott að ég keypti hann frekar stóran því hann á
kannski ekkert eftir að vera notaður fyrr en við erum komin heim á
klakann

Já, það er eitt sem víst er að maður kvartar ekki undan
veðrinu því það er búið að vera í kringum 10 stiga hiti. Nokkuð
ljúft um miðjan desember

Svo skelltum við okkur í
mæðragrúppuna á föstudaginn og Arna Sól hitti litlu vini sína sem
eru fæddir um svipað leyti og hún. Alltaf gaman að sjá muninn á
þessum krílum en auðvitað er skvísan okkur bara flottust

hahahha
Vegna margra sms-a og hringinga um
hver adressan okkar er þá læt ég hana bara hér:
Niels Bohrs Allé 23, 2027
5230 Odense M
Danmark.
Einnig eru komnar nýjar myndir á
barnalandið

Jólaknús,
Binna og Arna Sól